dv.is hlýtur að vera hagkvæmur auglýsingakostur í dag. Vefurinn hefur vaxið mjög að undanförnu og eflaust hægt að fá auglýsingar á góðu verði. Synd að það skuli ekki vera marktækar upplýsingar notendur á þessa vefi aðrar en þessar upplýsingar frá Modernus. Þær upplýsingar segja okkur ekki hver er að nota vefinn heldur eingöngu hversu margar IP tölur heimsóttu vefinn og svo hversu mörgum síðum var flett. Að sjálfsögðu eru það gagnlegar upplýsingar en það vantar ítarlegri upplýsingar þannig að markaðstjórar geti tekið upplýsta ákvörðun um það hvar á að auglýsa. En miðað við mína reynslu á verði á auglýsingar á dv.is vs mbl.is þá hljóta menn að skoða dv.is.
Það sama má líka segja um auglýsingar á eyjan.is og pressan.is það eru vefir sem hafa vaxið gríðarlega og aftur synd að þeir skuli ekki gefa auglýsendum nánari upplýsinga um það hverjir eru að nota vefinn. Það er ekki flókið að ná í þær upplýsingar og þarf ekki að vera dýrt.Hugsanlega er ástæðan sú að menn telji það ekki þess virði. Það hefur verið lenska t.d. í tímaritaútgáfu að leyna fyrri viðskiptavinum sínum hvað hann er að fá fyrir peningana. Þetta lýsir sér t.d. með því að verið er að leyna upplagstölum eða beinlínis að segja ósatt um upplagstölur og dreifingu. Til lengri tíma litið ber slík sölumenska ekki árangur.
No comments:
Post a Comment