Tuesday, 29 December 2009

Met í auglýsingasölu hjá Fréttablaðinu

Það hefur ekki farið fram hjá neinum sem vill sjá að Fréttablaðið var stútfullt af auglýsingum fyrir jólin nú sem aldrei áður. Enda voru nokkrar fréttir af þeim bæ sem sögðu okkur frá því að blaðið hefði aldrei verið stærra. Ég hef líka hlerað að auglýsingasala í krónum talið hafi aldrei verið meiri en nú í desember. Hvort hún sé meiri nú en áður á núvirði veit ég ekki en þetta segir okkur að í kreppu þá dregst mest saman hjá jaðarmiðlum.

No comments: