Wednesday, 9 December 2009

Auglýsingatekjur fjölmiðla 2008


Það sem vekur athygli er að tekjur útvarps aukast á milla ára 2007 og 2008 á meðan tekjur falla töluvert hjá sjónvarpsmiðlum og meira hjá blöðum og tímaritum. Þetta þarf svo sem ekki að koma mikið á óvart. Frá árinu 2004 höfðu margir spáð töluverðri aukningu í útvarpi. Það reyndist rétt aukning í útvarpi hefur verið verluleg hlutfallslega miðað við aðra miðla. Líklega verður aukningin meiri milli ára 2008 og 2009 en dregur úr henni eftir það.

Það vantar hins vegar aðgreiningu netauglýsinga í þessar tölur. Það væri forvitnilegt að skoða þróunn þar.


2 comments:

Unknown said...

Þetta eru sannarlega áhugaverðar tölur. Ég hafði samband við Hagstofuna vegna þessa.
Netmiðlar eru innfaldir í tölum um prentmiðla. Það er ljóst að eftir hrun (e.h.) hefur vefurinn styrktst til muna. Þó verður árið 2009 líklega árið sem "netið fékk vægi". Við munum skv. Hagstofunni fá vefmiðla sér fyrir árið 2009 bæði þá sem eru í eigu prentmiðlana sem og nýja vef-fjölmiðla sem hafa styrkt sig mikið e.h.

Kveðja,
Bárður Örn
@bardur
www.ratsja.is
@ratsja

Unknown said...

Það er víða sömu sögu að segja. Aukning á augýsingatekjum netmiðla er meiri núna en hefur verið undanfarin ár. Þetta er það sem markaðurinn hefur verið að spá um nokkurn tíma.