Wednesday, 6 February 2008

Lestur dagblaða


Niðurstöður mælinga á lestri dagblaða voru birtar í gær á heimasíðu Capacent. Fréttablaðið er með 61,8% lestur, 24 stundir með 45,8 og Morgunblaðið með 41,7%.

Öll blöðin eru í vanda. Fréttablaðið hefur enn sem áður yfirburðastöðu á auglýsingamarkaði. Ekki er nóg með að meðallestur Fréttablaðsins sé meiri heldur er það áfram með yfirburðastöðu meðal fólks undir 40 ára, mikilvægasta markhópnum.

Fréttablaðið er engu að síður í vanda. Lestur hefur minnkað um 7% á skömmum tíma þrátt fyrir þá staðreynd að blaðinu er nú dreift víðar en áður og að farið var í stóra auglýsingaherferð; "allt sem þú þarft."

Vandi Morgunblaðsins er sínu meiri. Lestur Morgunlaðsins var 54,3% í maí 2006 (þegar Fréttablaðið hóf göngu sína var lestur Morgunblaðsins um 60%). Á um 19 mánuðum hefur Morgunblaðið misst tæplega fjórðung lesenda. Lestur fólks undir 40 ára var í maí 2006 á bilinu 43-46%. Nú mælist lestur Morgunblaðsins í aldurshópnum 20 til 29 ára 19%. Það hefur misst rúmlega helming lesanda á þessum 19 mánuðum í þessum aldurshópi. Þetta er svarthol Morgunblaðsins og boðar endalok blaðsins.

24 stundir er sigurvegari þessara mælinga með 46% lestur þar sem þeir bæta við sig mestum lestri af öllum blöðum. En sigurinn er ekki eins stór og við var búist. Ég efast jafnframt um að það hafi verið sannfærandi fagnaðarlæti upp á Hádegismóum þegar þessar tölur birtust. Fyrirsvarsmenn 24 stunda hljóta að hafa vonast eftir betri útkomu, voru búnir að auglýsa mun meiri lestur fyrir áramót. Varla hefðu þeir gert það nema vera nokkuð sannfærðir um að þeir næðu þeim árangri. Þessi árangur, 46% lestur, er sami árangur og Sigurjón Magnús náði með blaðið í september 2006 og þá var það var með minni dreifingu og ekki þessa miklu auglýsingakeyrslu sem verið hefur. Í raun var árangurinn betri þá því lestur yngri en 40 ára var meiri. Þeir hjá Árvakri hafa sagt að herferð 24 stunda sé sú dýrasta sem dagblað hefur ráðist í. Hverju er hún að skila? Lesturinn er minni nú en í upphafi herferðar! 24 stundir ná ekki að komast nógu nærri Fréttablaðinu og ekki að toga lestur þeirra nóg niður til þess að taka auknar auglýsingatekjur af þeim. Munurinn er einfaldlega of mikill.

Þeir bæta þó töluverðu við lesturinn ef miðað er við maí 2008 líkt og með hin blöðin tvö hér að ofan. Á þeim tímapunkti mældist lestur 24 stunda/Blaðsins 32%. Lestur 24 stunda hefur s.s aukist um 44% frá þeim tíma sem er jú töluvert (reyndar náðist sami árangur í sept 2006 eins og áður sagði undir stjórn sme).

Öll dagblöðin virðast því samkvæmt þessum nýju mælingum eiga í vanda.

2 comments:

Anonymous said...

Það sjá það allir sem vilja að auglýsingaherferð 24 stunda er langt frá því að ver dýr. Þar er mjög ódýr framleiðsla á ferð. Síðan hlítur maður að velta fyrir sér hvers vegna ekki sjást auglýsingar frá Mogga? Ætli það sé vegna þess að 24 eigi að taka við kyndlinum??

Unknown said...

Það er augljóst að 24 stundir eiga að verða auglýsingablaðið frekar en Mogginn. Moggin er ekki alveg dauður.