
Síðasta haust birtust niðurstöður í lestrarkönnunum með nýju sniði og hefur það gengið afar vel. Stefnan var sett á að niðurstöður rafræna mælinga fyrir sjónvarp og útvarp yrðu birtar ekki síðar en haustið 2006. Það bólar hins vegar ekkert á þeim niðurstöðum nú einu og hálfu ári síðar. Og það sem verra er það er ekki verið að mæla með dagbókarkönnun heldur.
Á heimasíðu Capacent sést að síðasta mæling á útvarpi var í mars 2007. Það er s.s. tæpt ár síðan. Þar eru líka niðurstöður könnunar á áhorf á sjónvarp síðan í júní 2007 og ekkert eftir það. Þetta er það sem auglýsendur hafa í höndum til þess að ákveða staðsetningu á auglýsingum sínum. Það gefur augaleið að auglýsandin hefur ekkert annað en hyggjuvitið og gamlar upplýsingar til þess að byggja á.
Þetta virðist hins vegar ekkert hafa að segja fyrir auglýsendur. Þeir auglýsa eftir sem áður í útvarpi og nú sem aldrei fyrr. Þeir auglýsa líka eftir sem áður í sjónvarpi. Ég get með engu móti skilið afhverju auglýsendur hafa ekki krafist úrbóta. Ástandi hlýtur að vera með öllu óþolandi fyrir þá. Nema að það hafi alltaf verið hyggjuvitið sem réð ákvörðun en ekki rannsóknir.
Þá er spurning hvers vegna verið er að eyða fé og fyrirhöfn í kannanir sem ekki er þörf fyrir, eða hvað?
No comments:
Post a Comment