
Það er von til þess að niðurstöður mælinga á sjónvarpsáhorf og útvarpshlustun sé að vænta nú í vikunni. Nú er eins og flestir vita mælt með rafrænum hætti( PPM ), áður var mælt með dagbókum.
Helstu niðurstöður útvarpsmælinga eru að stóru útvarpsstöðvarnar koma svipað út innbyrðis og í mælingar með dagbókaformi sýndu. Hlustun er þó jafnari yfir daginn en mælingar sýndu áður.
RÚV er sigurvegari þessara mælinga á sjónvarpsáhorfi. Áhorf á RÚV er meira og það er lítið brotfall á milli þátta. Það kemur RÚV mjög vel vegna þess að þeir hafa ekki sömu möguleika á því að setja auglýsingatíma inn í þætti og einkareknu sjónvarpsstöðvarnar. Lítið brottfall er því mjög góð niðurstaða fyrir RÚV. skjár 1 kemur lakast út úr þessari mælingu.
No comments:
Post a Comment