Ekki skollið á óveður á Íslandi - mbl.is
Ingibjörg Sólrún hefur undarlegan mælikvarða á það hvað er "efnahagslegt óveður" og hvað ekki. í 14% verðbólgu, vextir 15% og krónan fallið um 35% . Óhjákvæmilegt að fasteignaverð lækki um 30% og atvinnuleysi vex ótrúlega hratt segir hún allt í þessu fína. Þetta er ástand sem er ávísun á gjaldþrot fyrirtækja og enn meiri samdrátt og það sem verra er gjaldþrot og vonleysi hjá mörgum íslenskum fjölskyldum. Ungt fólk sem hefur fest kaup á húsnæði síðastliðin þrjú ár getur lent í miklum vandræðum. Það eru ekki bara þeir sem hafa reist sér hurðarás um öxl sem eiga hættu á að missa sitt.
No comments:
Post a Comment