Friday, 20 June 2008

Auglýsendur á OL í Peking undir þrýstingi


Adidas er eins og aðrir kostendur á Ólympíuleikunum í Peking undir þrýstingi að mótmæla mannréttindabrotum Kínverja á Tíbetum. Forstjóri Adidas segir það ekki í verkahring kostenda á Ólympíuleikunum að mótmæla mannréttindabrotum Kínverja. Hann segir að ef fyrirtæki blandist í pólitík með þessum hætti þá verða þau að vera sjálfum sér samkvæm og þrýsta líka á Bandarísk stjórnvöld vegna Guantanamo, spænsk vegna ETA o.s.frv.

Aðrir kostendur svo sem Coca-Cola, General Electric og Volkswagen hafa einnig verið undir þrýstingi um að kosta ekki Ólympíuleikana af sömu ástæðu.

Kostun á Ólympíuleikunum hefur hingað til verið nokkuð áhættulaus. Nú er hins vegar möguleiki á því að fólk verði á skipulegan hátt hvatt til þess að sniðganga vörur kostendanna.

No comments: