
Á fyrsta ársfjórðungi þessa árs fækkaði auglýsingum í tímaritum verulega vestanhafs. Ljósið í myrkrinu eru tímarit um mat. Þar fjölgaði auglýsingum talsvert. Mest er fækuninn í tímaritum sem fjalla um viðskipti og þar sem munaðarvara er auglýst.
En örvæntið ekki fjöldi auglýsinga segir ekki alla söguna, það er innkoman sem skiptir máli. Publishers Information Bureau ( PIB ) segir að fyrsti ársfjórðungurinn hafi skilað tímaritum 5,2 milljörðum dollara í tekjur af auglýsingasölu. Það er 1,2 % samdráttur frá sama tímabili í fyrra.
Auglýsingasala í tímarit gekk vel á Íslandi á fyrsta ársfjórðungi.
No comments:
Post a Comment