
Það er víðar en á Íslandi sem dagblöð eiga í vanda. Í Fraklandi hefur eitt virtasta dagblaðið þar í landi Le Monde átt í erfiðleikum undanfarið. Blaðið hefur að sögn The Economist tapað 20 milljónum Evra á síðustu 9 mánuðum og skipt hefur verið um ritstjóra tvisvar. Þetta gerist þrátt fyrir að blöð í Frakklandi njóta ríkisstyrkja. 130 starfsmönnum blaðsins var sagt upp í síðustu viku og eins og franskra er siður boða þeir verkfall vegna þessa í dag 14. apríl.
Á sama tíma eykst lestur á fréttatengdum vikuritum. Sala á Le Point, jókst t.d. um 8%.Minkandi áhugi á dagblöðum í áskrift og aukin lestur á vikuritum sem skýra fréttir kemur ekki á óvart. Þessu hefur verið spáð um nokkurn tíma. Framboð á almennum fréttum, frítt er sífelt að aukast, áreitið eykst. Það er aftur tækifæri fyrir þá sem selja fréttaskýringar.
No comments:
Post a Comment