
Á aðeins 100 tímum fór Bear Stearns úr því að vera virtur fjárfestingabanki á Wall Street, í vandræðum að vísu í það að vera rústir einar.
( úr Viðskiptablaðinu )
10. mars 2008 - BS segir engan fót fyrir þeim sögusögnum
að bankinn sé í miklum lausafjárvandræðum. Forstjóri
BS segir efnahagsreikning bankans sterkan sem
og lausafjárstöðu og fjármögnun.
12. mars 2008 - Schwarz: „Ég sé lítinn þrýsting á lausafjárstöðu
okkar. Við erum í stöðugu sambandi við alla
okkar helstu lánveitendur og hingað til hefur enginn
neitað að lána okkur. Allar þær vangaveltur sem eru í
gangi eiga við lítil rök að styðjast.“
14. mars 2008 - BS staðfestir að samkomulag hafi náðst
við JPMorgan Chase og Seðlabanka Bandaríkjanna um
fjármögnun. Schwartz segir BS hafa verið viðfangsefni
orðróms sem hafi haft áhrif á stöðu bankans. „Í miðju
skrafinu á markaðnum hefur lausafjárstaða okkar
versnað til muna síðasta sólarhringinn.“
16. mars 2008 - Gert er opinbert að JPMorgan Chase
muni taka yfir BS fyrir um 230 milljónir dollara, eða um
2 dollara á hlut. Sú upphæð nemur um 17 milljörðum
króna, en til samanburðar er markaðsvirði Vinnslustöðvarinnar
hf. um 13 milljarðar króna.
No comments:
Post a Comment