Friday, 14 March 2008

Hlustun á útvarp

Ég hef ekki séð mikið fjallað um hlustun á útvarp eftir að byrjað var að mæla með rafrænni aðferð (ppm). Útvarp hefur verið á uppleið í talsverðan tíma og með auknum áhuga hafa auknar auglýsingatekjur farið í útvarp. RÚV jók talsvert veltu í útvarpi og 365 jók verulega auglýsingatekjur á síðasta ári eins og búist var við. Hins vegar voru einhverjum litlum útvarpsstöðvum lokað sem vour fyrst og fremst í samkeppni við 365.

Því var líka spáð að með tilkomu ppm færu enn meiri tekjur til útvarps, það á eftir að koma í ljós. Því var líka spáð að lítt þekktar stöðvar kæmu betur út úr mælingum með ppm heldur en dagbókarkönnunum. Reynslan er önnur.

Stöðvar 365 koma mun betur út en RÚV, öfugt við það sem hefur gerst í sjónvarpi.


Um 70% af mældri hlustun fólks undir 50 ára er á stöðvar 365 og er að aukast. Það ætti að gefa þeim færi á að auka verulega tekjur í útvarpi.


RÚV er með ívið meiri hlustun hjá öllum. Sá markhópur er ekki eins verðmætur því er róðurinn þyngri þar.

No comments: