![]() |
| Könnun Capacent maí - júlí 2010 |
Morgunblaðið hafði yfirburðastöðu á markaðinum fyrir 10 til 15 árum. DV var annað stærsta blaðið með lestur sem var langt um meiri en Morgunblaðið hefur í dag. Þá var lestur á DV um 50% og lestur á Morgunblaðið mun meiri. Núna hefur fríblað tekið við stöðunni sem Morgunblaðið hafði áður og hefur yfirburðar stöðu en Morgunblaðið er að fara niður fyrir 30% meðallestur á næstunni geri þeir ekkert til þess að breyta stöðunni. Athugið að það er ekki um það að ræða að blaðið hafi hækkað verð og sé að fá meira út úr hverri áskrift heldur virðist verð vera lægra nú en það hefur oftast verið og auglýsingaverð er afar lágt vegna yfirburðarstöðu Fréttablaðsins og hversu snertiverð er lágt þar. Það hlítur því að vera verulegt tap á þessum rekstri.
Verstu fréttirnar fyrir Morgunblaðið og auglýsendur er að lesturinn er fyrst og fremst hjá fólki eldra en 50 ára. Um 20% fólks á aldrinum 12 til 40 ára les Morgunblaðið í dag og um 30% á aldrinum á milli 40 og 50 ára. Lestrinum er haldið uppi af fólki eldra en 50 ára. Það er því augljóst hvert stefnir.
Hugsanlega eru eigendur og stjórnendur að ná markmiðum sínum ef þau eru halda á lofti skoðunum eigenda og ritstjóra og verja hagsmuni þeirra.

No comments:
Post a Comment