DV.is - Sandkorn - Arftaki Óskars
Það er mikið til í sandkorni DV að líklegasti arftaki Óskar Hrafns sem fréttastjóri Stöðvar 2 er Steingrímur Ólafsson fyrverandi fréttastjóri og núverandi ritstjóri Pressunar. Það er miður ef svo fer. Ég er að vona að í þetta skipti verður ráðin fréttastjóri sem hefur gildi vandaðar fréttamennsku að leiðarljósi og líti fyrst og fremst á hagsmuni almennings þegar fréttaefni er valið. Á það skortir víða eins og blasir við. Steingrímur er ekki líklegur til þess að uppfylla þessar sjálfsögðu kröfur, hann hefur einfaldlega sýnt það í gegnum tíðina að fréttamat hans er litað. Óskar Hrafn var hins vegar frábær að því leiti að hann hafði hagsmuni almennings að leiðarljósi. Hins vegar má deila um það hversu vandaður fréttaflutningur hans var, það var líka það sem varð honum að falli.
Það þarf ekki að leita langt til þess að finna rétta manninn í starfið.
1 comment:
Og hver er það?
Post a Comment