Thursday, 10 April 2008

Nýr ritstjóri Mónitors


Birgir Örn hætti sem ritstjóri Monitors í gær og Atli Fannar blaðamaður á 24 stundum tók við. Samkvæmt fréttum í gær þá sá Atli þessi um innblaðið á 24 stundum. Sjálfsagt hefur hann og eigendur Moritors væntingar til þess að hann auki lesturinn á blaðinu. En skoðum hver árangurinn er. 24 stundir eru með ótrúlega lítinn lestur hjá fólki undir 30 ára þrátt fyrir gríðarlega dreifingu. Í hópnum 12 - 19 ára er lesturinn undir 25% þrátt fyrir að blaðinu sé dreift heim til fólks. Sem dæmi þá er lesturinn á Séð og heyrt í þessum hópi 52%, Myndir mánaðarins 59%, Monitor er lesið af 20% í þessum hópi en það er ekki hægt að líkja aðgengi, eða kosnaði saman. Árangur Monitors er því mun betri. Ungt fólk hefur s.s. hingað til ekki haft áhuga á því sem Atli Fannar skrifar. Þessi tíðindi eru því tækifæri fyrir 24 stundir á að gera betur og ná upp lestri hjá ungu fólki. Varla getur það versnað.

No comments: