Saturday, 23 February 2008

Variety til sölu


Tímaritið Variety og tugir annara tímarita, m.a. Publishers Weekly eru til sölu. Þetta kemur fram í NYT í dag. Útgáfufyrirtækið Reed Elsevier sem á tímaritin hyggst losa sig við þau vegna óvissu á auglýsingamarkaði og losa um fé til þess að kaupa þekkingarfyrirtækið ChoicePoint Reed Elsevier hyggst með þessu færa sig frá tímaritaútgáfu og sérhæfa sig í að afla og selja upplýsingar.

Þess má geta að ChoicePoint er helsti keppinautur Nielsen Business Media sem margir þekkja fyrir mælingar á áhorfi á sjónvarp.

1 comment:

Anonymous said...

Er ekki þarna að opnast útrásartækifæri fyrir Birting?