Tuesday, 19 February 2008

Sjónvarpstjórar rífast


Sjónvarpsstjórar Stöðvar tvö og Skjás eins eru komnir í hár saman vegna túlkunar á niðurstöðum mælinga á áhorf á sjónvarp. Allir eru þó sammála um að þessi könnun er mjög góð fyrir RÚV. Í fyrsta lagi þá eiga þeir 14 af 15 vinsælustu þáttunum. Í öðru lagi þá er í fyrsta sinn mælt áhorf á augýsingar líka. Þar kemur í ljós að fólk er ekki mikið að skipta á milli stöðva á auglýsingatímum. Brottfallið er 5 til 10% en hingað til hefur verið gert ráð fyrir 10 til 20% brottfalli og talið var að það gæti verið meira ( sýndi ,,könnun" nema í fjölmiðlafræði að 5 af hverjum 7 skiptu um stöð ? ) Þetta er rosalega mikilvægt fyrir RÚV sem getur ekki sett auglýsingatíma inn í þætti með sama hætti og hinar stöðvarnar.

Hins vegar er rétt að áhorf á Stöð 2 og Skjá 1 svipað og verið hefur undanfarið í mínútum talið, í raun heldur meira eins og sjónvarpsstjórarnir hafa verið að draga fram. Það er hins vegar ekki rétt að áhorf á Stöð 2 hafi aldrei verið meira, a.m.k. ekki ef notaður er mælikvarðinn áhorf í mínútum. Árið 2005, var áhorf á Stöð 2 mun meira en RÚV mælt í mínútum og mun meira en nú. Það að áhorf er mikið í mínútum talið gefur þeim frjálsu sjónvarpsstöðvunum ágætt tækifæri til að ná til auglýsenda. Líklegast er þó að augýsingafé fari meira á RÚV á næstunni.

Eins og búist var við þá minnkar áhorf á fréttir með þessari nýju mælingaraðferð ( áhorf er meira á þætti sem fjalla um þjóðmál og fréttir ef spurt er hvað varstu að horfa eins og áður var gert í stað mælinga á því hvað fólk gerir eins og nú er gert )

No comments: