Í The Economist er sagt frá vefsíðu zml.com í athyglisverðri grein um Hollywood, kvikmyndaiðnaðinn og internetið. Greinin fjallar um þær ógnanir og þau tækifæri sem kvikmyndaiðnaðurinn stendur frami fyrir í dag. Þótt sumir segja að ólöglegt niðurhal muni ganga af kvikmyndaiðnaðinum dauðum benda aðrir á þau tækifæri sem felast í auðveldari aðgengi að markhópum. En skoðið þessa síðu.

Zml.com er nefnt sem dæmi um hvernig kvikmyndum verður dreift í nánustu framtíð. Gallinn við þessa síðu er hins vegar að hún er jú sjóræningasíða. Hér heima höfum við fengin nasasjóna af baráttu rétthafa við "ólöglegu" niðurhali á myndum í barátu SMÁÍS gegn vefsíðum sem buðu upp á niðurhal á myndum.
No comments:
Post a Comment